Tenglar

14. janúar 2015 |

Kynning á ferðaþjónustu á landsbyggðinni

Markaðsstofur landshlutanna gangast fyrir vinnufundinum Mannamóti fyrir samstarfsfyrirtæki sín 22. janúar kl. 11-17 í flugskýli Flugfélagsins Ernis á Reykjavíkurflugvelli. Fundurinn er hugsaður sem vettvangur til kynningar á ferðaþjónustu á landsbyggðinni og tækifæri til að koma á fundum fagaðila í greininni. Tilgangurinn er að kynna fyrirtæki á landsbyggðinni fyrir ferðaþjónum á höfuðborgarsvæðinu og koma á tengslum. Gestum gefst kostur á kynna sér það sem landshlutarnir hafa að bjóða með áherslu á vetrarferðamennsku.

 

Aðeins samstarfsfyrirtæki markaðsstofanna geta sem sýnendur tekið þátt í Mannamóti 2015.

 

Gjald og skráning:

Þátttökugjald fyrir hvert fyrirtæki er kr. 10.000. Skráningu lýkur núna á föstudag, 16. janúar. Skráning og ítarupplýsingar á www.naturaliceland.is.

 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Markaðsstofu Vestfjarða.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31