Tenglar

7. júní 2011 |

Kynning á tillögu að breyttu aðalskipulagi

Með vísan í 2. mgr. 30 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 kynnir Reykhólahreppur tillögu að breytingu á aðalskipulagi Reykhólahrepps 2006-2018. Hún fjallar um breytingu á Vestfjarðavegi frá Eiði í Vattarfirði að Þverá í Kjálkafirði. Tillagan ásamt umhverfisskýrslu verður til sýnis á skrifstofu Reykhólahrepps, Maríutröð 5a á Reykhólum, miðvikudaginn 8. júní kl. 12-16. Fulltrúar sveitarfélagsins verða á staðnum og svara fyrirspurnum.

 

Íbúar Reykhólahrepps eru hvattir til að koma og kynna sér tillöguna.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31