Tenglar

16. september 2016 | Umsjón

Kynningarfundir um skipulag ferðamála

Stjórnstöð ferðamála og Ferðamálastofa boða til kynningarfunda víða um land um gerð stefnumarkandi stjórnunaráætlana (Destination Management Plans-DMP) og verður einn þeirra haldinn á Hólmavík þriðjudaginn 20. september kl. 9 um morguninn.

 

Á fundunum munu fulltrúar Ferðamálastofu og Stjórnstöðvar ferðamála kynna verkþætti og tímalínu verkefnisins auk þess sem skoski ráðgjafinn Tom Buncle mun fara ítarlega yfir eðli, markmið og tilgang slíkra verkefna og hvernig þau geta nýst inn í framtíðarskipulag og þróun svæða.

 

Hagaðilar DMP verkefna eru breiður hópur, svo sem sveitarfélög, markaðsstofur, atvinnuþróunarfélög, ferðaþjónar, ferðaklasar, upplýsingamiðstöðvar, aðrir þjónustuaðilar, öryggis- og viðbragðsaðilar, íbúar o.fl.

 

Skráning fer fram á vef Ferðamálastofu (www.ferdamalastofa.is).

 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Markaðsstofu Vestfjarða.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31