18. október 2018 | Sveinn Ragnarsson
Kynningarfundur um vindorkugarð í Garpsdal
EM Orka ætlar að standa fyrir kynningarkvöldi vegna fyrirhugaðs
vindorkugarðs í Garpsdal næsta miðvikudagskvöld.
Gamla Kaupfélagshúsinu Króksfjarðarnesi, Nesheimum.
Miðvikudaginn 24. Október, kl 20:00 – 22:00.
Verkefnið verður kynnt,
hvernig það mun birtast íbúum í nágrenninu,
og hver ávinningur Reykhólhrepps mun vera af því.
Mannvit mun einnig kynna umhverfismat verkefnisins.
Vonumst eftir að fá að hitta ykkur sem flest.
Fyrir hönd EM Orku,
Ríkarður Örn Ragnarsson
Verkefnastjóri.