29. janúar 2019 | Sveinn Ragnarsson
Lækkaður hraði við einfaldar brýr
Ákveðið hefur verið að lækka hámarkshraða á alls 75 einföldum brúm í 50 km/klst. Af þessum 75 eru 3 á leiðinni suður Dali, á Glerá, Fáskrúð og Haukadalsá, á Vestfjarðavegi (60). Frétt um þetta er á vefsíðu Vegagerðarinnar.
Þetta á við um brýr þar sem umferð er að meðaltali 300 bílar eða fleiri á sólarhring árið um kring.
Ef við höldum í vesturátt eftir vegi (60) en þar er umferðin undir þessu viðmiði, bætast 7 einfaldar brýr við, bara í Reykhólahreppi og líklega 20 í viðbót áfram vestur/norður til Ísafjarðar.