27. september 2016 | Ingibjörg Birna
Lætur af starfi umsjónarmanns
Hlynur Þór Magnússon hefur látið af umsjón með Reykhólavefnum. Hann hefur annast vefinn í átta og hálft ár en af heilsufarsástæðum hefur hann nú óskað eftir lausn frá starfi. Hlynur mun samt liðsinna starfsfólki á skrifstofu Reykhólahrepps óformlega við vefinn eitthvað enn um sinn eftir því sem aðstæður leyfa.
Netfang vefjarins er eftir sem áður vefstjori@reykholar.is. Síminn á skrifstofu Reykhólahrepps er 430 3200.
Ólafur Helgi Kjartansson, mivikudagur 28 september kl: 09:56
Vert er að þakka Hlyni fyrir góða umsjón og umhugsun. Vefurinn hefur verið athyglisverður og skemmtilegur.