Lagningu jarðstrengs út Reykjanesið að ljúka
Orkubú Vestfjarða (OV) er í þann veginn að ljúka lagningu 11 kv jarðstrengs frá Höllustöðum rétt utan við Reykhóla og út að Stað og Árbæ yst á Reykjanesi, samtals um 7,3 kílómetra. Auk þess að plægja strenginn niður fólst verkið í uppsetningu fjögurra spennistöðva og lagningu nýrra heimtauga frá þeim. Þar með eiga nú allir bæirnir út Reykjanesið kost á þriggja fasa rafmagni. Með þessu ætti jafnframt raforkuöryggið að aukast til mikilla muna, segir Þorsteinn Sigfússon svæðisstjóri OV á Hólmavík. Gamla loftlínan var orðin nokkuð lúin og verður síðan fjarlægð.
Byrjað var að plægja strenginn niður um miðjan september. Spennistöðvarnar eru á Stað, við bátinn á Hamarlandi og við þjóðveginn á Miðjanesi og við Skerðingsstaði. Plæginguna annaðist Brynjólfur Smárason verktaki frá Borg í Reykhólasveit (Verklok ehf.) með gröfu sinni en traktor frá OV rakti kapalinn niður eins og sjá má á myndunum.
Tveir heimamenn hafa komið að þessu verki. Auk Brynjólfs hefur Guðmundur Ólafsson á Grund, starfsmaður OV í Reykhólahreppi, gert það annað slagið. Að öðru leyti unnu nokkrir starfsmenn OV á Hólmavík þetta verk.
Myndirnar tók Ingimundur Pálsson hjá OV á Hólmavík.