Tenglar

2. júlí 2011 |

Landbúnaður: Freyja ætlar að fylla skarð Freys

Síðsumars hefur nýtt búnaðarblað göngu sína. Blað þetta hefur hlotið nafnið Freyja til heiðurs Búnaðarblaðinu Frey, sem gefinn var út í rúm hundrað ár þar til fyrir nokkrum árum. Útgáfufélagið Sjarminn mun gefa blaðið út en því standa Axel Kárason, Eyjólfur Ingvi Bjarnason og Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir, sem öll hafa numið landbúnaðarfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands og eru mikið áhugafólk um framþróun íslensks landbúnaðar. Jafnframt sjá þau um ritstjórn blaðsins.

 

Í Freyju verður miðlað hagnýtu fræðsluefni tengdu landbúnaði. Fyrsta árið mun Freyja koma út fjórum sinnum á ári og verður efni hvers blaðs nokkuð tengt árstíðum hverju sinni. Ýmsir fastaliðir verða í blaðinu þar sem sögunni verða gerð skil, sem og skyggnst verður út fyrir landsteinana. Meginuppistaða hvers blaðs verður þó ætíð fræðsluefni þar sem fræðimönnum og ráðgjöfum á sviði landbúnaðar gefst kostur á að miðla fróðleik til lesenda.

 

Að baki ritstjórn er ritnefnd sem í sitja Gunnar Guðmundsson, sviðsstjóri hjá Bændasamtökum Íslands, Bjarni Guðmundsson á Landbúnaðarsafni Íslands, Emma Eyþórsdóttir hjá Landbúnaðarháskóla Íslands, Magnús B. Jónsson nautgriparæktarráðunautur hjá Bændasamtökunum og Eiríkur Loftsson ráðunautur hjá Leiðbeiningamiðstöðinni í Skagafirði.

 

Freyja verður fyrst og fremst veftímarit (www.sjarminn.is) þar sem lesendur geta nálgast blaðið án endurgjalds og verður því dreift með tölvupósti til skráðra viðtakenda. Prentað eintak mun einnig standa til boða gegn greiðslu fyrir prentun og dreifingu.

 

Til að fá blaðið sent í tölvupósti þarf að skrá sig á lista með því að senda póst á netfangið sjarminn@sjarminn.is.

 

Ef menn vilja prentað eintak þarf að skrá sig fyrir 30. júlí með því að hafa samband við Axel (860 2935), Eyjólf (862 0384) eða Gunnfríði (898 4897). Fyrsta blaðið mun kosta 1.500 krónur auk sendingarkostnaðar.

 

„Það er mat okkar sem að blaðinu stöndum að mikil þörf sé á fagtímariti sem þessu innan landbúnaðargeirans, þar sem áhersla er lögð á miðlun fagefnis og fræðslu á hagnýtan hátt. Það er því von okkar að viðtökur íslenskra bænda og annars áhugafólks um innlendan landbúnað verði ánægjulegar“, segir í tilkynningu.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31