Landsbankinn: Búnaði komið upp á Reykhólum
Reykhólahreppur verður ekki alveg bankalaus þrátt fyrir lokun útibúsins í Króksfjarðarnesi. Núna er unnið að því að koma fyrir búnaði á Reykhólum þar sem Sóley Vilhjálmsdóttir verður með opið á miðvikudögum, fyrst um sinn að minnsta kosti. Hún mun koma í Barmahlíð fyrir hádegi en síðan verður hún með opið kl. 13-16 í aðstöðu sem bankinn hefur fengið í húsakynnum Reykhólahrepps við Maríutröð. Séð verður til þegar kemur fram á haustið hvernig þessi tími reynist og hvort einhver annar dagur væri heppilegri.
Ekki er víst að allur búnaður verði kominn í afgreiðslu bankans á Reykhólum núna á miðvikudag.
Síminn verður eftir sem áður 410 4158 og netfang Sóleyjar verður eins og áður Soley.Vilhjalmsdottir@landsbankinn.is. Síðan er hægt að hringja í Landsbankann á Patreksfirði. „Þar verður fyrirspurnum svarað alveg á sama hátt og við höfum gert hér gegnum síma fram að þessu,“ segir Sóley.