27. desember 2013 | vefstjori@reykholar.is
Landsbankinn ekki á Reykhólum í dag
Vegna slæms veðurs og veðurspár verður afgreiðsla Landsbankans á Reykhólum ekki opin í dag eins og áformað var. „Patreksfjarðarkonur eru tilbúnar að hjálpa eins og þær geta,“ segir Sóley Vilhjálmsdóttir í Nesi, starfsmaður bankans í Reykhólahreppi.