Tenglar

30. október 2013 | vefstjori@reykholar.is

Landsbyggðin lifi á fyrsta evrópska dreifbýlisþinginu

Fyrsta evrópska dreifbýlisþingið (European Rural Parliament eða ERP) kemur saman í Brüssel 13. nóvember. Þátttakendur verða fulltrúar um sjötíu mismunandi dreifbýlissamtaka frá liðlega þrjátíu löndum og svæðum í Evrópu. Af hálfu Íslendinga taka samtökin Landsbyggðin lifi þátt í þinginu og munu fimm íslenskir fulltrúar sitja það. Tilgangurinn er að koma málefnum hinna dreifðu byggða á dagskrá Evrópusambandsins og hafa áhrif á stefnumörkun sem mun snerta lífið í dreifbýli.

 

Fulltrúar stefnumótandi yfirvalda verða með á ERP-þinginu og taka þátt í umræðunum og eiga hlut að þeim hugmyndum sem frá þátttakendum koma. Fyrirmyndin að þinginu er frá Svíþjóð þar sem grasrótarsamtök og yfirvöld hafa mæst á jafnréttisgrundvelli á Sænska dreifbýlisþinginu sem haldið hefur verið á ýmsum stöðum undanfarin tólf ár.

 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá samtökunum Landsbyggðin lifi.

 

Þess er vænst að hreyfingarnar sem taka þátt í þinginu öðlist skilning á því hversu fjölmörg mál og hugðarefni eru sameiginleg. Gæði skóla, aðgangur að heilbrigðisþjónustu og margvíslegri grunnþjónustu og möguleikar til að hafa áhrif á Evrópusambandið eru aðeins nokkur þeirra málefna sem tekin eru fyrir í tillögum sem fjallað verður um á ERP-þinginu.

 

„Þarna fáum við frábæra blöndu hugmynda, bæði frá yfirvöldum og almenningi, tengda raunverulegum aðstæðum. Vinnuferlið heldur svo áfram eftir þingið þar sem vinnuhópar munu taka við verkefnum og niðurstöðum og gera síðar grein fyrir framgangi mála sem þeim hafa verið falin. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt vinnulag (módel) er notað innan Evrópusambandsins,“ segir Inez Abrahamzon, verkefnastjóri ERP og stjórnarformaður Öll Norðurlöndin lifi (All North Shall Live).

 

Evrópska dreifbýlisþingið verður haldið í húsakynnum European Economic and Social Committee 13. nóvember. Daginn eftir verða fulltrúar ERP með kynningu fyrir þingmenn Evrópuþingsins.

 

Vefur European Rural Parliament (ERP)

Landsbyggðin lifi, heimasíða

 

Athugasemdir

Þórarinn Ólafsson, mivikudagur 30 oktber kl: 16:57

Ætli Dalli fari. Það þætti mér gaman að vita.
kv.bestar
Tóti

Guðjón D. Gunnarsson, mivikudagur 30 oktber kl: 20:19

Bara þér til ánægju, félagi Tóti, upplýsi ég, að ég fer ekki.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31