Tenglar

12. janúar 2015 |

Landsskipulagsstefna og skipulagsgerð sveitarfélaga

Skipulagsstofnun kynnir auglýsta tillögu að Landsskipulagsstefnu 2015-2026 á opnum fundi í Háskólasetri Vestfjarða á Ísafirði kl. 12.30-14.30 á miðvikudag, 14. janúar. Auk þess sem tillagan verður kynnt verður fjallað sérstaklega um framfylgd landsskipulagsstefnu í skipulagsgerð sveitarfélaga, svo sem við endurskoðun aðalskipulags. Jafnframt verður bein útsending frá kynningu í Reykjavík 29. janúar kl. 15-17 og má sjá hana á heimasíðu Skipulagsstofnunar.

 

Tillöguna, ásamt umhverfismati og fylgiskjali, Skipulagsmál á Íslandi 2014 – lykilmælikvarðar og fyrirliggjandi áætlanir, má nálgast á www.landsskipulag.is og www.skipulagsstofnun.is. Frestur til að skila athugasemdum er til 13. febrúar 2015.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31