Tenglar

23. mars 2017 | Sveinn Ragnarsson

Langþráð stækkun Hólabúðar hafin

Ása og Reynir
Ása og Reynir
1 af 4

Nú er undirbúningur hafinn að stækkun húsnæðis Hólabúðar. Verslunin og veitingasalan hjá þeim Ásu og Reyni er í frekar knöppu rými, svo ekki sé meira sagt, en nú sjá þau fram á bjartari tíma með mun betri vinnuaðstöðu.

 

Spaugað hefur verið með að þarna sé minnsti veitingastaður norðan Alpafjalla, með 1 fjögurra manna borð, en ekki hefur það komið niður á afgreiðslunni þó gestirnir væru fleiri en 4.

Stefnt er að því að viðbótin verði tilbúin í lok maí.

 

Meðfylgjandi myndir eru af undirbúningsvinnu, og Ásu og Reyni sem gáfu sér tóm frá störfum í búðinni til að stilla sér upp.

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31