1. desember 2012 |
Lauksúpa með beikoni að hætti Kötlukvenna
Eins og hér var greint frá um daginn hefur Kvenfélagið Katla í Reykhólahreppi gefið út á ný matreiðslubókina með 90 lystilegum uppskriftum sem út kom fyrir tveimur árum og seldist upp. Jafnframt hefur félagið gefið út dagatal fyrir komandi ár með litmyndum úr héraðinu. Hvort tveggja fæst í Hólakaupum á Reykhólum og líka er hægt að panta í netfanginu andrea@simnet.is. Hvort um sig kostar 2.000 krónur.
Hér kemur ein af uppskriftunum í bókinni.
Lauksúpa
100 g beikon
3 laukar
1 hvítlauksrif
3 stórar kartöflur
1 lítri vatn
½ tsk svartur pipar
½ tsk salt
kjötkraftur
Aðferð
- Brúnið beikonið á pönnu og látið fituna leka af á pappír.
- Skerið laukinn í þunnar sneiðar.
- Skerið kartöflurnar í litla bita.
- Látið laukinn ásamt hvítlauknum malla í pottinum við vægan hita í ca. 20 mínútur. Hann á ekki að verða brúnn.
- Hellið vatni yfir laukinn og bætið kartöflunum út í og látið sjóða í 15 mínútur.
- Bætið beikoninu við og látið sjóða í 5 mínútur.
Berið fram með brauði og rifnum osti.