16. september 2011 |
Laus pláss á kökuskreytinganámskeiðinu
Enn vantar nokkra til að fara af stað með þetta frábæra námskeið í Auðarskóla í Búðardal á þriðjudag, segir Svava Svavarsdóttir hjá Símenntunarmiðstöð Vesturlands, og bætir við: Viltu læra að töfra fram fallega skreyttar kökur? Á námskeiðinu læra þátttakendur undirstöðuatriðin í kökuskreytingum, þar sem unnið er með „gumpaste“ og sykurmassa. Þátttakendur fá að spreyta sig að útbúa „fígúrur“ ásamt því að skreyta bollakökur sem eru innifaldar í námskeiðsgjaldinu og má taka með heim. Farið verður yfir hvaða áhöld er gott að nota við skreytingar og sýnt hvernig hvert og eitt þeirra virkar.
Sjá nánar:
01.09.2011 Kökuskreytingar og mósaíknámskeið í Búðardal