Tenglar

20. júlí 2012 |

Laus staða leikskólakennara við Reykhólaskóla

Reykhólaskóli.
Reykhólaskóli.

Reykhólaskóli leitar að leikskólakennara í 100% starfshlutfall. Reykhólaskóli er nýsameinaður leik- og grunnskóli með um 18 nemendur á leikskólastigi og um 35 nemendur á grunnskólastigi.

 

Menntunarkröfur:

  • Réttindi til að nota starfsheitið leikskólakennari.

Hæfniskröfur:

  • Frumkvæði og samstarfsvilji.
  • Sveigjanleiki og víðsýni.
  • Áhugi á starfsþróun.
  • Lipurð og færni í samskiptum.
  • Að vera reiðubúinn að leita leita nýrra leiða í skólastarfi.
  • Reynsla af starfi með börnum.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags leikskólakennara.

 

Ráðið verður í stöðuna frá og með 14. ágúst 2012. Umsókn ásamt ferilskrá skal berast með tölvupósti á netfangið skolastjori@reykholar.is. Nánari upplýsingar veitir Anna Greta Ólafsdóttir skólastjóri í síma 695 2506.

 

Umsóknarfrestur er til og með 1. ágúst.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31