20. júní 2013 | vefstjori@reykholar.is
Laus staða við Reykhólaskóla
Reykhólaskóli auglýsir laust til umsóknar 57% starfshlutfall í kennslu við grunnskóladeild. Um er að ræða myndmennta- og smíðakennslu á öllum stigum, aðstoðarkennslu í sundi á öllum stigum, upplýsingatækni á elsta stigi og einn áhugasviðsáfanga á elsta stigi.
Umsóknarfrestur er til og með 1. júlí.
Nánari upplýsingar gefur Anna Greta Ólafsdóttir skólastjóri í símum 434 7806 og 695 2506 og netfanginu skolastjori@reykholar.is.