28. apríl 2011 |
Laus störf hjá Reykhólahreppi
Reykhólahreppur auglýsir eftir starfsmanni til starfa við heimaþjónustu. Um er að ræða sumarafleysingu. Upplýsingar um starfið gefur félagsmálastjóri Félagsþjónustu Stranda og Reykhólahrepps í síma 451 3510.
Umsóknir berist skrifstofu Reykhólahrepps í pósti eða á netföngin annað hvort sveitarstjori@reykholar.is eða felagsmalastjori@strandabyggd.is.
Jafnframt skal ítrekuð auglýsing eftir ritara á skrifstofu Reykhólahrepps. Allar nánari upplýsingar er að finna hér.