18. júlí 2017 | Sveinn Ragnarsson
Laus störf í Barmahlíð
Starfsfólk vantar í umönnun á hjúkrunar og-dvalarheimilið Barmahlíð á Reykhólum frá 15. ágúst, bæði í fullt starf og hlutastörf. Einnig er óskað eftir starfsmanni í 60% starf við ræstingar, unnið er frá 9-14.
Í Barmahlíð er unnið metnaðarfullt starf þar sem heimilismenn og starfsfólk vinna saman að því að skapa öruggt og heimilislegt umhverfi.
Nánari upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri, netfang barmahlid@reykholar.is eða hringið í síma 434 7817
Húsnæði er í boði á staðnum.