26. apríl 2016 |
Laus störf í Þörungaverksmiðjunni
Þörungaverksmiðjan hf. á Reykhólum óskar eftir að ráða í eftirtalin störf:
- Sumarafleysingar í verksmiðju og við löndun
- Störf á verkstæði við viðhald og viðgerðir
- Viðhaldsformann á verkstæði félagsins
Æskileg reynsla og hæfni:
- Frumkvæði
- Samviskusemi og vandvirkni
- Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
- Vinnuvélaréttindi
Öryggisvitund og þátttaka og virðing fyrir öryggiskröfum er skilyrði.
Þörungaverksmiðjan byggir á sjálfbærri nýtingu á þangi og þara í Breiðafirði og framleiðir mjöl af háum gæðum til fjölbreyttra nota. Afurðir eru lífrænt vottaðar og seldar um allan heim.
Verksmiðjan gerir strangar kröfur um umhverfismál og setur öryggi starfsmanna í öndvegi.
Áhugasamir hafi samband við Bjarna Þór Bjarnason í síma 849 7080 eða Birnu Björnsdóttur í síma 864 9283 eða netfanginu birna@thorverk.is.
Forvarnastarfið til fyrirmyndar