14. apríl 2021 | Sveinn Ragnarsson
Lausar kennarastöður við Reykhólaskóla
Reykhólaskóli er samrekinn leik-, tónlistar- og grunnskóli á sunnanverðum Vestfjörðum.
Grunnskólinn er fámennur, með þrjár bekkjardeildir 1.- 4. bekk, 5.-7. bekk og 8.-10. bekk og er nemendum kennt í samkennslu.
Áhersla er lögð á útikennslu og upplýsingamennt samþætt við annað nám og eru nemendur með aðgang að tölvum og ipöddum.
Áhersla er lögð á jákvæðan skólabrag meðal nemenda og starfsfólks og fjölbreytta kennsluhætti.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingum sem hafa áhuga á að vinna með börnum og hafa mikla hæfni í mannlegum samskiptum.
Augýsingin í heild er hér.
Umsóknarfrestur er til og með 26. apríl 2021.
Miðað er við að ráða í stöðurnar frá 1. ágúst 2021.