11. maí 2021 | Sveinn Ragnarsson
Lausir kettir á Reykhólum
Til kattaeigenda á Reykhólum.
Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti vorið 2020 bókun þess efnis að lausaganga katta væri bönnuð í þéttbýlinu Reykhólum yfir varp- og uppeldistíma fugla frá 1. apríl - 1. september ár hvert.
Sveitarstjórn telur brýnt að vernda fuglalíf á Reykhólum sem hefur mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn og fuglaskoðara.