6. júlí 2014 | vefstjori@reykholar.is
Laust hlutastarf á Reykhólum
Reykhólahreppur auglýsir laust til umsóknar starf umsjónarmanns félagsstarfs barna og unglinga utan skólatíma. Um er að ræða 12 tíma á mánuði eða þar um bil. Reykhólahreppur starfrækir Opið hús barna og unglinga tvo fimmtudaga í mánuði þegar skóli stendur.
Engar sérstakar menntunarkröfur eru gerðar, en kostur væri að viðkomandi hefði sótt skyndihjálparnámskeið.
Hæfniskröfur:
- Áhugi á að starfa með börnum og unglingum.
- Góðir samskiptahæfileikar.
- Hugmyndaauðgi.
- Frumkvæði og sjálfstæði.
- Reglusemi og samviskusemi.
- Hreint sakavottorð.
Nánari upplýsingar um starfið gefur sveitarstjóri í síma 434 7880 og netfanginu sveitarstjori@reykholar.is. Umsókn berist skrifstofu Reykhólahrepps fyrir 1. ágúst.