Tenglar

10. apríl 2013 | vefstjori@reykholar.is

Laust hlutastarf við bókasafnið á Reykhólum

Starf bókavarðar við bókasafn Reykhólahrepps er laust til umsóknar. Um er að ræða 10% hlutastarf tvisvar í viku tvo tíma í senn og einn laugardag í mánuði. Starfið felst í umsjón með safninu og þjónustu við fólkið í sveitarfélaginu. Fyrir liggur að skrá safnið og nútímavæða það. Kröfur um hæfni og menntun eru þessar:

  • Að hafa náð 20 ára aldri.
  • Nákvæmni í starfi og tölvukunnátta eru skilyrði.
  • Skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.

Nánari upplýsingar um starfið gefur sveitarstjóri í síma 434 7880 og netfanginu sveitarstjori@reykholar.is.

 

Launakjör fara eftir kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og FosVest eða VerkVest.

 

Nánari upplýsingar um launakjör gefur launafulltrúi í síma 434 7880 og netfanginu erla@reykholar.is.

 

Umsóknum skal skila skriflega til Reykhólahrepps fyrir 20. apríl 2013.

 

- Sveitarstjóri.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Jl 2024 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31