Tenglar

12. mars 2014 | vefstjori@reykholar.is

Laust starf: Umsjónarmaður Grettislaugar

Grettislaug. Ljósm. Árni Geirsson.
Grettislaug. Ljósm. Árni Geirsson.

Reykhólahreppur auglýsir starf umsjónarmanns Grettislaugar á Reykhólum, sem er laust frá 1. maí. Umsækjandi þarf að hafa náð 25 ára aldri og vera ábyrgur og skipulagður í verkum. Starfið felst í allri umsjón með rekstri laugarinnar, ráðningu starfsfólks, skipulagningu vakta, innkaupum, uppgjöri og fleiru. Starfshlutfallið er að meðaltali um 50% yfir árið. Grettislaug er opin allt árið en lengur á sumrum en vetrum.

 

Umsókn skal skilað á skrifstofu Reykhólahrepps að Maríutröð 5a á Reykhólum eða í netfangið skrifstofa@reykholar.is fyrir 15. apríl.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Jl 2024 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31