11. mars 2014 | vefstjori@reykholar.is
Laust starf: Umsjónarmaður Reykhóladaga
Reykhólahreppur auglýsir eftir umsjónarmanni fyrir Reykhóladaga í sumar. Um er að ræða tímabundið starf við skipulagningu og framkvæmd byggðarhátíðar Reykhólahrepps, sem verður 25.-27. júlí. Umsækjandi þarf að hafa náð 25 ára aldri. Æskilegt er að hafa áður annast viðburð af svipuðum toga.
Umsókn berist á skrifstofu Reykhólahrepps að Maríutröð 5a á Reykhólum eða í netfangið skrifstofa@reykholar.is fyrir 1. apríl.