9. ágúst 2013 | vefstjori@reykholar.is
Laust starf á Reykhólum
Staða stuðningsfulltrúa við Reykhólaskóla er laus til umsóknar. Ráðið er tímabundið frá 15. ágúst 2013 til 23. maí 2014. Starfshlutfall er 75%. Umsóknarfrestur er til 13. ágúst. Karlar jafnt sem konur eru hvattir til að sækja um starfið. Launakjör samkvæmt kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknum skal skila í netfangið skolastjori@reykholar.is. Öllum umsóknum verður svarað.
Nánari upplýsingar gefur Anna Greta Ólafsdóttir skólastjóri í síma 434 7806 og 434 7731 eða í netfanginu skolastjori@reykholar.is.
- Reykhólaskóli er sameinaður leik- og grunnskóli með nemendur frá 1 árs til 16 ára. Í starfinu er áhersla lögð á umhyggju og fjölbreytt, skapandi starf.