9. júní 2015 |
Laust starf á Reykhólum
Aðstoðarmatráð vantar í mötuneyti Reykhólahrepps sem allra fyrst. Starfshlutfall 100%. Hæfnisskilyrði: Góð þjónustulund, lipurð í samskiptum. Reynsla af matseld æskileg.
Nánari upplýsingar um starfið og allt sem því viðkemur gefur Ingvar Samúelsson matráður í síma 898 7783 eða sveitarstjóri í síma 430 3200.
Laun fara eftir kjarasamningum sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.