Tenglar

5. ágúst 2015 |

Laust starf forstöðumanns Grettislaugar

Grettislaug / Árni Geirsson.
Grettislaug / Árni Geirsson.

Reykhólahreppur auglýsir laust starf umsjónarmanns Grettislaugar á Reykhólum frá 1. september eða jafnvel fyrr. Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri og vera samviskusamur og traustur og góður í mannlegum samskiptum. Starfið felst í umsjón með sundlauginni, rekstri hennar og öryggi laugargesta.

 

Viðkomandi hefur mannaforráð og sér um skipulag vakta og ráðningu starfsfólks í sumarafleysingar. Um er að ræða ca. 50% starfshlutfall að jafnaði. Starfi þessu fylgir mikil ábyrgð. Umsækjandi verður að hafa gild réttindi í skyndihjálp og björgun, samþykkt af RKÍ.

 

Nánari upplýsingar um starfið gefur Harpa Eiríksdóttir, fráfarandi umsjónarmaður Grettislaugar, í netfanginu info@reykholar.is. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Reykhólahrepps eða í netfangið sveitarstjori@reykholar.is sem allra fyrst.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31