Tenglar

11. apríl 2013 | vefstjori@reykholar.is

Laust starf hjá Reykhólahreppi

Starf ritara á skrifstofu Reykhólahrepps er laust til umsóknar. Ritari hefur umsjón með almennri þjónustu við íbúa á skrifstofu sveitarfélagsins. Um er að ræða hlutastarf frá kl. 10 til 14. Umsækjandi þarf að geta hafið störf 2. maí.

 

Helstu verkefni:

  • Afgreiðsla.
  • Móttaka á skrifstofu.
  • Símavarsla.
  • Skjalavarsla.
  • Ýmsar umsóknir.
  • Aðstoð við stjórnir og nefndir.
  • Aðstoð við ýmis bókhaldsleg störf í samráði við skifstofustjóra. 

Kröfur um menntun og hæfni:

  • Þekking á skjalavörslu og OneSystems skjalastjórnunarkerfi er góður kostur.
  • Reynsla við bókhaldsstörf.
  • Nákvæmni í starfi og mjög góð tölvukunnátta eru skilyrði.
  • Skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.

Nánari upplýsingar um starfið gefur sveitarstjóri í síma 434 7880 og netfanginu sveitarstjori@reykholar.is.

 

Launakjör fara eftir kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og FosVest eða VerkVest.

 

Nánari upplýsingar um launakjör gefur launafulltrúi í síma 434 7880 og netfanginu erla@reykholar.is.

 

Umsóknum skal skila skriflega til Reykhólahrepps fyrir 20. apríl 2013.

 

- Sveitarstjóri.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31