Tenglar

28. ágúst 2013 | vefstjori@reykholar.is

Laust starf hjá Reykhólahreppi

Laust er starf bókavarðar við Héraðsbókasafn Reykhólahrepps á Reykhólum. Starfið felst í umsjón með safninu og þeirri þjónustu sem slíku fylgir. Á dagskrá er að skrá safnið og nútímavæða það. Um er að ræða 10% hlutastarf, tvo tíma í senn tvö kvöld í viku og kl. 11-13 einn laugardag í mánuði. Starfið er laust frá 15. september. Skilyrði er að hafa náð 20 ára aldri.

 

Hæfni sem krafist er:

  • Nákvæmni í starfi og tölvukunnátta
  • Skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi
  • Hæfni í mannlegum samskiptum

 

Nánari upplýsingar gefur sveitarstjóri í síma 434 7880 eða netfanginu sveitarstjori@reykholar.is. Upplýsingar um launakjör gefur launafulltrúi í sama síma eða netfanginu erla@reykholar.is. Launakjör fara eftir kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og FosVest eða VerkVest.

 

Umsóknum skal skila skriflega til Reykhólahrepps fyrir 10. september.

 

- Sveitarstjóri.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31