Tenglar

3. janúar 2014 | vefstjori@reykholar.is

Laust starf hjá Reykhólahreppi

Vegna fæðingarorlofs starfsmanns auglýsir skrifstofa Reykhólahrepps eftir ritara tímabundið í 56% starf til 1. maí 2015 eða í rúmt ár. Ritari hefur umsjón með almennri þjónustu við íbúa á skrifstofu sveitarfélagsins, svo sem:

  • Afgreiðslu
  • Móttöku á skrifstofu
  • Símavörslu
  • Skjalavörslu
  • Ýmsum umsóknum
  • Aðstoð við stjórnir og nefndir
  • Aðstoð við ýmis bókhaldsleg störf í samráði við skrifstofustjóra

 

Menntunar-  og hæfniskröfur:

  • Hæfni í mannlegum samskiptum
  • Nákvæmni í starfi og mjög góð tölvukunnátta eru skilyrði
  • Skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi
  • Þekking á skjalavörslu og OneSystems skjalastjórnunarkerfi er góður kostur
  • Reynsla við bókhaldsstörf er góður kostur

 

Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Vinnutími er kl. 10-14 alla virka daga.

 

Launakjör fara eftir kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og FosVest eða VerkVest.

 

Umsóknum skal skila skriflega til Reykhólahrepps fyrir 13. janúar 2014.

 

Nánari upplýsingar gefur sveitarstjóri í síma 434 7880 og netfanginu sveitarstjori@reykholar.is.

 

- Sveitarstjóri.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31