Tenglar

27. febrúar 2014 | vefstjori@reykholar.is

Laust starf íþrótta- og tómstundafulltrúa

Dalabyggð, í samvinnu við Ungmennasamband Dalamanna og Norður-Breiðfirðinga (UDN), auglýsir starf íþrótta- og tómstundafulltrúa. Leitað er að öflugum einstaklingi sem er tilbúinn að stýra metnaðarfullu og lifandi starfi. Starfshlutfall er 50% og skiptist þannig, að starf íþrótta- og tómstundafulltrúa Dalabyggðar er 30% og framkvæmdastjórn UDN 20%.

 

 

Helstu verkefni

  • Að samþætta og efla íþrótta- og tómstundastarf í Dalabyggð og stuðla að samfellu í skóla-, íþrótta- og félagsstarfi barna í sveitarfélaginu.
  • Framkvæmdastjórn UDN.
  • Yfirumsjón með vinnuskóla, félagsmiðstöð og íþróttamannvirkjum.
  • Aðstoð við ungmennaráð Dalabyggðar.
  • Skipulag og verkefnastjórn í ýmsum málum sem til falla, t.d. forvarnamálum, átaksverkefnum og hátíðum.

 

Hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi.
  • Reynsla og þekking á íþrótta- og æskulýðsmálum.
  • Góð framkoma og hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Reynsla af stjórnun, stefnumótun og fjárhagslegri ábyrgð.
  • Framsýni og metnaður í starfi.
  • Almenn tölvukunnátta.

 

Gert er ráð fyrir að starfsmaðurinn komi til með að búa í Dalabyggð og hann þarf að hafa hreint sakavottorð. Starfsstöð verður á skrifstofu Dalabyggðar.

 

Umsókn skal skila til skrifstofu Dalabyggðar, Miðbraut 11, 370 Búðardal.

 

Umsóknarfrestur er til og með 7. mars og æskilegt að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31