Tenglar

5. júlí 2017 | Sveinn Ragnarsson

Laust starf ritara

herak.is
herak.is

Starf ritara á skrifstofu Reykhólahrepps er laust til umsóknar. Ritari hefur umsjón með almennri þjónustu við íbúa, á skrifstofu sveitarfélagsins. Um er að ræða 80% starfshlutfall. Umsækjandi þarf að geta hafið störf 15. ágúst.


 Helstu verkefni:

·     Afgreiðsla.

·     Móttaka á skrifstofu.

·     Símavarsla.

·     Skjalavarsla.

·     Ýmsar umsóknir.

·     Aðstoð við stjórnir og nefndir.

·     Aðstoð við ýmis bókhaldsleg störf í samráði við skifstofustjóra s.s. reikningagerð og fl.


Kröfur um menntun og hæfni:

·     Þekking á skjalavörslu og OneSystems skjalastjórnunarkerfi er góður kostur.

·     Reynsla við bókhaldsstörf.

·     Nákvæmni í starfi og mjög góð tölvukunnátta eru skilyrði.

·     Skipulagshæfni og sjálfstæði í starfi.

·     Góð framkoma og hæfni í mannlegum samskiptum.

 

Nánari upplýsingar um starfið gefur sveitarstjóri í síma 430 3200 og netfanginu sveitarstjori@reykholar.is.


 Launakjör fara eftir kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og FosVest eða VerkVest. Nánari upplýsingar um launakjör gefur launafulltrúi í síma 430 3200 og netfanginu gudrun@reykholar.is


Umsóknum með upplýsingum um menntun og fyrri störf, skal skila á netfangið sveitarstjori@reykholar.is eða senda í pósti á Reykhólahrepp, Maríutröð 5a, 380 Reykhólahreppur.  Umsóknarfrestur er til 20. júlí 2017.

 

 

  

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31