Tenglar

23. júní 2015 |

Laust starf til umsóknar

Grettislaug / Árni Geirsson.
Grettislaug / Árni Geirsson.

Reykhólahreppur auglýsir laust starf umsjónarmanns Grettislaugar á Reykhólum frá og með 1. september 2015, jafnvel fyrr ef hentar. Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri og vera samviskusamur og traustur og góður í mannlegum samskiptum. Starfið felst í umsjón með sundlauginni, rekstri hennar og öryggi laugargesta.

 

Viðkomandi hefur mannaforráð og sér um skipulag vakta og ráðningu starfsfólks í sumarafleysingar. Um er að ræða ca. 50% starfshlutfall að jafnaði. Starfi þessu fylgir mikil ábyrgð. Umsækjandi þarf að kunna hjálp í viðlögum og hafa gilt skírteini frá RKÍ.

 

Upplýsingar um starfið gefur sveitarstjóri í síma 430 3200. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Reykhólahrepps eða í netfangið sveitarstjori@reykholar.is. Umsóknarfrestur er til 10. júlí 2015.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Nvember 2024 »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30