Laust starf tómstundafulltrúa
Reykhólahreppur auglýsir laust starf tómstundafulltrúa í Reykhólahreppi frá 1. janúar 2017. Um er að ræða tímabundið starf til eins árs í afleysingu vegna fæðingarorlofs. Starfshlutfall er 60-70%, vinnutími breytilegur. Tómstundafulltrúi skipuleggur og heldur utan um vetrarstarf félagsmiðstöðvar, tómstundir fullorðinna og störf Vinnuskóla Reykhólahrepps yfir sumartímann, Einnig heldur hann utan um skipulag og framkvæmd bæjarhátíðar sveitarfélagsins. Möguleiki er á ca. 20% viðbótarstarfshlutfalli við Reykhólaskóla.
Hæfniskröfur:
Menntun sem nýtist í starfi, reynsla og þekking á æskulýðsmálum.
Góð framkoma og hæfni í mannlegum samskiptum.
Laun fara eftir kjarasamningum stéttarfélaga og Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til 30. september 2016. Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á skrifstofu sveitarfélagsins að Maríutröð 5a, 380 Reykhólahreppi, eða í netfangið sveitarstjori@reykholar.is.
Nánari upplýsingar um starfið gefa tómstundafulltrúi í síma 698-2559 og sveitarstjóri í síma 430-3200.