Tenglar

26. september 2016 | Umsjón

Laust starf tómstundafulltrúa

Reykhólahreppur auglýsir laust starf tómstundafulltrúa í Reykhólahreppi frá 1. janúar 2017. Um er að ræða tímabundið starf til eins árs í afleysingu vegna fæðingarorlofs. Starfshlutfall er 60-70%, vinnutími breytilegur. Tómstundafulltrúi skipuleggur og heldur utan um vetrarstarf félagsmiðstöðvar, tómstundir fullorðinna og störf Vinnuskóla Reykhólahrepps yfir sumartímann. Hann heldur einnig utan um skipulag og framkvæmd bæjarhátíðar sveitarfélagsins. Möguleiki er á ca. 20% viðbótarstarfshlutfalli við Reykhólaskóla.

 

Hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi, reynsla og þekking á æskulýðsmálum.
  • Góð framkoma og hæfni í mannlegum samskiptum.

 

Laun fara eftir kjarasamningum stéttarfélaga og Sambands íslenskra sveitarfélaga.

 

Hægt er að sækja um flutningsstyrk til sveitarfélagsins.

 

Umsóknarfrestur er til 30. september 2016. Umsóknir ásamt ferilskrá sendist á skrifstofu sveitarfélagsins að Maríutröð 5a, 380 Reykhólahreppi, eða í netfangið sveitarstjori@reykholar.is.

 

Nánari upplýsingar um starfið gefa tómstundafulltrúi í síma 698-2559 og sveitarstjóri í síma 430-3200.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31