Laust starf umsjónarmanns Grettislaugar
Reykhólahreppur auglýsir laust starf umsjónarmanns Grettislaugar á Reykhólum frá og með 1. september, jafnvel fyrr ef hentar. Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri og vera samviskusamur og traustur og góður í mannlegum samskiptum. Starfið felst í umsjón með sundlauginni, rekstri hennar og öryggi laugargesta.
Viðkomandi hefur mannaforráð og sér um skipulag vakta og ráðningu starfsfólks í sumarafleysingar. Um er að ræða ca. 50% starfshlutfall að jafnaði. Starfi þessu fylgir mikil ábyrgð. Umsækjandi þarf að kunna hjálp í viðlögum og hafa gilt skírteini frá RKÍ.
Upplýsingar um starfið gefur sveitarstjóri í síma 430 3200. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Reykhólahrepps eða í netfangið sveitarstjori@reykholar.is sem allra fyrst eða í síðasta lagi 10. júlí.