Tenglar

6. júlí 2015 |

Laust starf umsjónarmanns Grettislaugar

Reykhólahreppur auglýsir laust starf umsjónarmanns Grettislaugar á Reykhólum frá og með 1. september, jafnvel fyrr ef hentar. Umsækjandi þarf að hafa náð 20 ára aldri og vera samviskusamur og traustur og góður í mannlegum samskiptum. Starfið felst í umsjón með sundlauginni, rekstri hennar og öryggi laugargesta.

 

Viðkomandi hefur mannaforráð og sér um skipulag vakta og ráðningu starfsfólks í sumarafleysingar. Um er að ræða ca. 50% starfshlutfall að jafnaði. Starfi þessu fylgir mikil ábyrgð. Umsækjandi þarf að kunna hjálp í viðlögum og hafa gilt skírteini frá RKÍ.

 

Upplýsingar um starfið gefur sveitarstjóri í síma 430 3200. Umsóknum skal skilað á skrifstofu Reykhólahrepps eða í netfangið sveitarstjori@reykholar.is sem allra fyrst eða í síðasta lagi 10. júlí.

       

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Jl 2024 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31