24. febrúar 2015 |
Laust starf við Grettislaug
Grettislaug á Reykhólum auglýsir eftir starfsmanni í hlutastarf, unnin er önnur hver vika. Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri og vera reglusamur og sjálfstæður í starfi. Einnig þarf að kunna hjálp í viðlögum og hafa gilt skírteini frá RKÍ. Best væri að geta hafið störf sem fyrst.
Frekari upplýsingar veitir Harpa í síma 894 1011. Umsóknir skal senda á netfangið info@reykholar.is.