25. október 2012 |
Laust starf við félagslega heimaþjónustu
Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps auglýsir eftir starfsmanni eða starfsmönnum í 30% starf við félagslega heimaþjónustu í Reykhólahreppi. Markmið félagslegrar heimaþjónustu er að einstaklingar séu efldir til sjálfshjálpar og þeim sé gert kleift að búa sem lengst í heimahúsum við sem eðlilegastar aðstæður. Þjónustan felur í sér innlit ásamt þrifum í heimahúsum.
Starfið er laust frá 1. janúar. Umsóknir um skal senda í netfangið felagsmalastjori@strandabyggd.is eða skila inn á skrifstofu Reykhólahrepps.
Upplýsingar veitir Hildur Jakobína Gísladóttir félagsmálastjóri í síma 842 2511.