Tenglar

12. nóvember 2012 |

Laust starf við félagslega heimaþjónustu

Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps auglýsir eftir starfsmanni eða starfsmönnum í 30% starf við félagslega heimaþjónustu í Reykhólahreppi. Markmið félagslegrar heimaþjónustu er að einstaklingar séu efldir til sjálfshjálpar og þeim sé gert kleift að búa sem lengst í heimahúsum við sem eðlilegastar aðstæður. Þjónustan felur í sér innlit ásamt þrifum í heimahúsum.

 

Starfið er laust frá 1. janúar. Umsóknir skal senda í netfangið felagsmalastjori@strandabyggd.is eða skila inn á skrifstofu Reykhólahrepps.

 

Upplýsingar veitir Hildur Jakobína Gísladóttir félagsmálastjóri í síma 842 2511.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2025 »
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30 31