Tenglar

10. janúar 2013 | vefstjori@reykholar.is

Laust starf við heimaþjónustu í Reykhólahreppi

Félagsþjónusta Stranda og Reykhólahrepps auglýsir eftir starfsmanni eða starfsmönnum í 30 prósent starf við félagslega heimaþjónustu í Reykhólahreppi. Markmið félagslegrar heimaþjónustu er að fólkið sem hennar nýtur sé eflt til sjálfshjálpar og sé gert kleift að búa sem lengst í heimahúsum við sem eðlilegastar aðstæður. Þjónustan felur í sér innlit ásamt þrifum.

 

Um er að ræða afleysingastarf vegna fæðingarorlofs til eins árs. Umsóknir skal senda í netfangið felagsmalastjori@strandabyggd.is eða skila inn á skrifstofu Reykhólahrepps.

 

Upplýsingar veitir Hildur Jakobína Gísladóttir félagsmálastjóri í síma 842 2511.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Oktber 2024 »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31