10. febrúar 2011 |
Laust starf við ræstingu hjá Reykhólahreppi
Reykhólahreppur auglýsir laust starf við ræstingu á skrifstofu sveitarfélagsins. Um er að ræða tvær klukkustundir í viku. Umsækjandi þarf að vera eldri en 18 ára. Umsóknarfrestur er til 15. febrúar. Hægt er að sækja um starfið á skrifstofu hreppsins við Maríutröð á Reykhólum eða í netfanginu sveitarstjori@reykholar.is. Upplýsingar gefur sveitarstjóri í síma 434 7880.