Tenglar

11. apríl 2011 |

Leiðbeiningarit um uppbyggingu ferðamannastaða

Ferðamálastofa, Framkvæmdasýsla ríkisins og Hönnunarmiðstöð Íslands hafa tekið höndum saman um gerð leiðbeiningarits um uppbyggingu ferðamannastaða á Íslandi. Leitast verður við að horfa til heildarmyndar og sérstöðu staða svo að unnt verði að draga fram þá upplifun sem þar er að finna.

 

Í ritinu verða skilgreindar raunhæfar leiðir og aðferðir við uppbyggingu ferðamannastaða. „Meginmarkmið verkefnisins er að bæta upplifun og umhverfisleg gæði ferðamannastaða á Íslandi með sjálfbæra þróun og menningarleg gildi að leiðarljósi. Áhersla er lögð á vistvæna hugmyndafræði, vandaðar greiningar og eflingu gæðavitundar ferðaþjónustuaðila, almennings og aðila sem að ákvörðunartöku koma“, segir í samstarfssamningi þessara aðila.

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31