28. ágúst 2014 | vefstjori@reykholar.is
Leiðrétting á fjallskilaseðli
Villa leyndist í fjallskilaseðli Reykhólahrepps, sem birtur var hér á vefnum í gær. Þar sagði á bls. 10 varðandi Þórisstaði, að leitað skyldi mánudaginn 19. september. Þar átti að standa föstudaginn 19. september og hefur það nú verið leiðrétt.
Fjallskilaseðilinn má sækja hér og líka í reitnum Tilkynningar neðst til hægri á síðunni.