Tenglar

27. september 2013 | vefstjori@reykholar.is

Leiðrétting á mistökum í Morgunblaðinu

Í frásögn Morgunblaðsins af hringborðsumræðum um málefni Vestfjarða 14. september sl. var ranglega haft eftir Einari Sveini Ólafssyni framkvæmdastjóra Þörungaverksmiðjunnar á Reykhólum að ekki væri hjúkrunar- og dvalarheimili fyrir aldraða á staðnum. Þvert á móti lagði Einar Sveinn áherslu á mikilvægi stærstu vinnustaðanna, Þörungaverksmiðjunnar, skólanna og hjúkrunarheimilisins, fyrir samfélagið á staðnum. Einar Sveinn er beðinn velvirðingar á þessum mistökum og þeim óþægindum sem þau hafa bakað honum. „Furðufréttir af Reykhólum“, sem gerðar voru að umtalsefni í aðsendri grein í Morgunblaðinu á fimmtudaginn og á vefnum Reykholar.is á föstudaginn, skrifast alfarið á reikning undirritaðs blaðamanns.

 

Guðmundur Magnússon

 

- Ofanritað barst vef Reykhólahrepps til birtingar núna í morgun.

 

Athugasemdir

Björk Stefánsdóttir, fstudagur 27 september kl: 09:55

Frábært að heyra, og flott hjá blaðamanni að setja þetta hér inn
Bestu kveðjur
Björk

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Jl 2024 »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31