10. apríl 2023 | Sveinn Ragnarsson
Leiðtogi hringrásarsamfélags ráðinn
Reykhólahreppur hefur ráðið Kjartan Þór Ragnarsson í starf leiðtoga hringrásarsamfélagsins í Reykhólahreppi.
Kjartan var valinn úr hópi 11 umsækjenda. Kjartan er með BA í lögfræði og BA í sagnfræði með heimspeki sem aukagrein og diplómu í kennslufræði til kennsluréttinda.
Hann starfar sem kennari við Menntaskólann í Reykjavík og mun sinna því starfi til loka júlí. Þangað til verður hann í 50% starfi hjá Reykhólahreppi og kemur svo í fullt starf í byrjun ágúst.