3. maí 2016 |
Leikskólakennari óskast
Leikskóladeild Reykhólaskóla óskar eftir að ráða leikskólakennara (deildarstjóra í tímabundið starf) í 100% starf til eins árs frá og með 12. ágúst. Vinnutími er frá kl. 8 til 16.
Hæfniskröfur:
- Réttindi sem leikskólakennari skv. 3. gr. laga nr. 87/2008*)
- Færni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði og sjálfstæði í starfi
- Stundvísi
- Jákvæðni og áhugasemi
Reykhólaskóli er sameinaður leik- og grunnskóli. Í leikskóladeildinni er ein deild með 20 börnum á aldrinum 1-5 ára. Einkunnarorð skólans eru Vilji er vegur. Lögð er áhersla á skapandi starf og nám í gegnum leik.
*) Ef ekki berast umsóknir frá leikskólakennurum sem uppfylla hæfniskröfur er heimilt að ráða leiðbeinanda í stöðuna tímabundið til eins árs.
Upplýsingar veitir skólastjóri, Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir, í síma 434 7731 og netfanginu skolastjori@reykholar.is.
Umsóknarfrestur er til 25. maí.