Tenglar

24. apríl 2013 | vefstjori@reykholar.is

Leikverk um Sigvalda Kaldalóns í Tjarnarlundi

Elfar Logi Hannesson sem Sigvaldi Kaldalóns.
Elfar Logi Hannesson sem Sigvaldi Kaldalóns.

Saga tónskáldsins Sigvalda Kaldalóns, sem á sínum tíma var læknir í Flatey og líka við Ísafjarðardjúp innanvert (kenndi sig við Kaldalón í Inndjúpi), er rakin í leikverki sem flutt verður í Tjarnarlundi í Saurbæ í kvöld, síðasta vetrardag. Sýningin hefst kl. 20.30. Höfundur verksins og leikari er Elfar Logi Hannesson frá Bíldudal (Kómedíuleikhúsið á Ísafirði) en hljóðfæraleikari og leikkona er Dagný Arnalds.

 

Miðaverð er kr. 3.000 fyrir fullorðna og kr. 1.500 fyrir börn á grunnskólaaldri. Boðið verður upp á súpu og kaffi. Athugið að enginn posi er á staðnum og því skynsamlegt að mæta með reiðufé.

 

Í leikritinu er rakin saga Sigvalda þau ellefu ár sem hann er læknir í Nauteyrarumdæmi við Djúp. Á þessum árum samdi hann mörg af sínum helstu sönglögum. Í leikritinu eru flutt mörg þeirra laga sem hann samdi á sínum Kaldalónsárum. Meðal þeirra eru Við Kaldalón, Þú eina hjartans yndið mitt, Sofðu góði sofðu og Svanurinn minn syngur.

 

Í sýningunni verður brugðið upp atvikum frá þessum skapandi tíma í ævi Sigvalda. Samstarfi hans við Höllu skáldkonu á Laugabóli, tónleikahaldi hans og Eggerts stórsöngvara bróður hans fyrir vestan, læknisferðum um Djúpið sem voru nú ekki alltaf hættulausar og síðast en ekki síst samskiptum hans við Djúpmenn.

 

Halla skáldkona hét fullu nafni Hallfríður Guðrún Eyjólfsdóttir og var fædd í Gilsfjarðarmúla í Geiradalshreppi (nú Reykhólahreppi). Foreldrar hennar voru Jóhanna Halldórsdóttir og Eyjólfur Bjarnason. Árið 1886 réðst hún sem vinnukona að Laugabóli við Ísafjörð og varð þar síðar fjórtán barna húsmóðir þar.

 

Kómedíuleikhúsið er fyrsta atvinnuleikhús Vestfjarða og hefur sérhæft sig í því að vinna úr sagnaarfi Vestfjarða. Meðal sýninga sem Kómedíuleikhúsið hefur sett á svið má nefna leikverkin Muggur, Steinn Steinarr, Gísli Súrsson, Jón Sigurðsson - Strákur að vestan, Náströnd – Skáldið á Þröm og Listamaðurinn með barnshjartað.

 

Sigvaldi Kaldalóns er 33. uppfærsla Kómedíuleikhússins.

 

► Reykhólavefurinn 24.03.2011 Halla Eyjólfsdóttir frá Gilsfjarðarmúla - Halla á Laugabóli

 

Skrifaðu athugasemd:


Atburðadagatal

« Ma 2024 »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31